Monday, November 20, 2006

Kartöflugörðunum heima


Sunnudagur á Vitastígnum. Snjó hafði kyngt niður í henni Reykjavík um nóttina og sem karlmaðurinn á heimilinu heldur sambýlismaðurinn út á tröppur að moka með stóru skóflunni sinni (svo tröppurnar verði nú engum að aldurtila)



Sunnudagur á Vitastígnum hjá sambýliskonu nr. 1 er lítur eilítið öðruvísi út, en sem námsmaðurinn á heimilinu þýðir lítið annað en bogra yfir bókunum. (Eins og ég syrgi nú árin í háskólanum þá sakna ég sunnudagslærdóms ekkert átakanlega)




Ahh og sunnudagur á Vitastígnum hjá sambýliskonu nr.2. Sem úrilla vaktavinnumanneskjan var hún að vinna kvöldið áður og sofnaði með blautt hárið, svaf svo vel og lengi út og var svo ógreidd í sweatpants alveg þangað til hún þurfti bráðnauðsynlega að gera sig eins snyrtilega og sunnadagar bjóða upp á fyrir sunnudagskvöld í vinnunni.



Fyndið hversu stuttan tíma það tekur fyrir hús að verða heimili...

2 comments:

Anonymous said...

LIKE THE NEW STYLE........ ÞÚ ÆTTIR KANNSKI AÐ GERA ÞETTA AÐ ÞÍNUM STÍL... ÚFNI GUÐNI LÚBER ;)

VERÐ AÐ SEGJA AÐ ÉG ER SAMMÁLA ÞÉR MEÐ SUNNUDAGSLÆRDÓMINN....REYNDAR SAKNA ÉG SKÓLANS EKKI NEITT.... JA NEMA KANNSKI AÐ HITTA KRAKKANA SEM MAÐUR HITTIR EKKERT Í DAG :(

Unknown said...

Töff hárgreiðsla ;) held að það sé svei mér þá betri kostur að fara á kvöldvakt á sunnudegi heldur en sitja yfir lærdómnum...